Karellen
news

Rauða deild - Ljósmyndasýning

11. 03. 2022

Ljósmyndasýning

Í tilefni af degi leikskólans sem var þann 6. febrúar s.l. ákváðum við á Hnoðrabóli að halda ljósmyndasýningu í gluggum leikskólans.

Börnunum á Rauðu deild fannst mjög spennandi að taka myndir á deildarsímann og vönduðu sig mikið. Þemað hjá okkur var að taka mynd af því sem hverjum og einum þætti skemmtilegast að leika við í leikskólanum. Svörin voru fjölbreytt og oftar en ekki það leikefni sem verið var með þegar að myndatökunni kom. Allir á rauðu deild hengdu upp eina mynd af því sem þeim þætti skemmtilegast að leika við í leikskólanum og svo teiknuðu þau eina mynd til að bjóða uppá smá myndlistarsýningu líka.

Börnin buðu svo foreldrum sínum að ganga með sér hringinn í kringum húsið og skoða myndirnar í gluggunum í upphafi eða lok dags. Sýningin hékk svo uppi yfir helgi svo þeir sem höfðu áhuga á gætu skoðað verkefnið okkar.

Myndirnar fara svo í ferilmöppur barnanna og verða um leið dýrmætar heimildir um hvað þeim fannst gaman að leika við þegar þau voru á Rauðu deild á Hnoðrabóli.




© 2016 - 2024 Karellen