Karellen
news

Ústkrift og fjör - auglýsing

18. 05. 2018

OPIÐ HÚS, ÚTSKRIFT OG FJÖR.

Kæru foreldrar.

Hefð hefur verið fyrir því að útskriftarnemar útskrifist frá Hnoðrabóli í maí og nú í ár er útskrift föstudaginn 25. maí. Þann sama dag verður hátíð á Hnoðrabóli.

Fyrir hádegi þann dag klára börn og starfsmenn að undirbúa hátíðarhöldin, síðan höfum við fjör fyrir börnin, setjum leikföngin út og höfum gaman. Í hádeginu borðum við hamborgara að hætti Emblu.

Húsið opnar kl. 14.15 og hefst þá formleg dagskrá.

  • Móttaka á gestum
  • Börnin syngja
  • Útskrift nemenda
  • Börnin bjóða gestum á kvikmyndasýningu og að taka þátt í stöðvavinnu.
  • Kaffiveitingar
  • Dagskráin verður að hluta til úti og henni líkur kl. 15.45.

Foreldrum ogsystkinum er boðið að koma ogeiga góða stund með okkur. Útskriftabörnin mega líka bjóða ömmum og öfum af tilefni útskriftarinnar. Boðið verður upp á kaffiveitingar í lokin.

Lífið er yndislegt MEÐ SÓL Í HJARTA.

Sólarkveðjur frá öllum á Hnoðrabóli.

© 2016 - 2024 Karellen