Karellen
news

Opið hús á degi leikskólans

05. 02. 2019

Dagur leikskólans – 6 febrúar 2019

Dagur leikskólans er 6. febrúar. Allir sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt eru hvattir til að halda Degi leikskólans á lofti og vekji athygli á mikilvægu hlutverk leikskóla og starfi leikskólakennarans.

Í tilefni af degi leikskólans 2019 verður opið hús á Hnoðrabóli frá kl: 15 – 16 og þá eru allir velkomnir í heimsókn. Af þessu tilefni hafa börnin ort ljóð, vísur eða sögur og myndskreytt en blásið var til samkeppni meðal leikskólabarna þar sem verkefnið var að yrkja á íslensku. Við á Hnoðrabóli tókum ekki þátt í þeirri samkeppni en ákváðum að yrkja á íslensku í tilefni dagsins. Verkin verða til sýnis á ganginum við hvetjum alla sem geta til að kíkja í heimsókn til okkar og sjá það góða starf sem unnið er innan veggja leikskólanna alla daga.

Bestu kveðjur með sól í hjarta, börn og starfsfólk Hnoðrabóls

© 2016 - 2024 Karellen